Innlent

Berjast gegn nýjum hættum á Netinu

mynd/E.Ól

Alþjóðalögreglan Interpol hefur komið á fót sérstökum hópi til að berjast gegn nýjum hættum sem börnum af barnaníðingum á Netinu. Í tilkynningu frá Interpol kemur fram að glæpamenn séu nú farnir að koma upp nokkurs konar fyrirsætusíðum til þess að ná til barna.

Ungt fólk geti sett myndir af sér inn á síðurnar sem barnaníðingar noti síðan til þess að hafa samband við unga fólkið og hugsanlega beita það kynferðisofbeldi eða kaupa myndir af slíku. Meðal þess sem hópurinn mun kanna er hvort skipulagðir glæpahópar komi að þessu.

Verkefnið er hluti af stærra verkefni Interpol sem miðar að því að berjast gegn ofbeldi gegn börnum en með sérstökum gagnabanka um barnaklámsmyndir hefur lögreglunni tekist að bjarga yfir 500 fórnarlömbum kynferðisofbeldis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×