Innlent

Kröfu lögreglu um gæsluvarðhald yfir grunuðum brennuvargi hafnað

Andri Ólafsson skrifar
Grunur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða á Hilmisgötu.
Grunur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða á Hilmisgötu.

Héraðsdómur Suðurlands hafnaði í dag kröfu lögreglunnar á Selfossi um að kona á fertugsaldri, sem grunuð er um að hafa kveikt í húsi í Vestmannaeyjum í vikunni, yrði úrskuðuð í gæsluvarðhald. Konan er því laus úr haldi lögreglu.

Lögreglan óskaði í gær eftir því að konan yrði úrskurðuð í viku gæsluvarðhald. Dómari tók sér frest til klukkan fjögur í dag en hafnaði svo kröfunni. Konan er grunuð um að verða valdur að bruna í húsi við Hilmisgötu í Vestmannaeyjum á miðvikudag.

Að sögn lögreglunnar í Selfossi, sem fer með rannsókn málsins, miðar rannsókn ágætlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×