Næturlendingum fjölgar um 80 prósent á fimm árum 21. nóvember 2007 13:21
Nærri áttatíuprósent fleiri flugvélar lentu eða tóku á loft á Reykjavíkurflugvelli að næturlagi í fyrra en árið 2001. Formaður samgöngunefndar Alþingis vill banna næturflug einkaþotna á Reykjavíkurflugvelli og hefur efasemdir um að hugmyndir samgönguráðherra um að hækka lendingargjöldin, sem nú eru að meðaltali tíu þúsund krónur á einkaþotu, dygðu til að draga úr flugumferð á næturna í Vatnsmýrinni. Fréttastofa hefur fengið tölur frá Flugstoðum um næturhreyfingar sjö ár aftur í tímann. Árið 2000 sker sig úr en þá voru 553 vélar sem lentu eða tóku á loft að næturlagi. Skýringin á þessum fjölda mun vera, samkvæmt upplýsingum frá Flugstoðum, að einmitt þetta ár hafi borgarstjóri og samgönguráðherra gert með sér samkomulag um að draga úr næturumferð.Það skilar sér strax næsta ár þegar næturumferðin dregst saman um meira en helming - lendingar og flugtök eru aðeins 268. Þeim fjölgar síðan ár frá ári, og eru árið 2003 komnar upp í 331 skipti og á síðasta ári lentu eða tóku á loft alls 477 vélar að næturlagi þegar flugumferð á vera eins lítil og kostur er. Flugumferðin í Vatnsmýrinni hefur því aukist um 78 prósent á þessum sex árum.Sjúkraflug var á þessu árabili 8-19 prósent af næturumferðinni. Einhver hluti skýrist af seinkunum áætlunarvéla og sömuleiðis véla Landhelgisgæslunnar. Hins vegar er drjúgur hluti tilkominn vegna aukinnar flugumferðar einkaþotna. Næturflug einkaþotna á heima á Keflavíkurflugvelli og hvergi annars staðar, sagði formaður samgöngunefndar í gær. Eigendur einkaþotna og flugvallaryfirvöld virðast ekki líta svo á.
Mest lesið Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Innlent Barist á hafi úti Erlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Ég sé engin rök fyrir því“ Innlent Fleiri fréttir Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Sjá meira