Vinnuveitandi ruddist inn á fund í Vélstjóra- og málmiðnaðarfélaginu Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. nóvember 2007 11:39 Örn Friðriksson segir erlendu starfsmennina vissulega vera í sínu félagi. „
Eigandi fyrirtækisins Stál í Stál ruddist ásamt fylgdarmanni inn á fund sem Vélstjóra- og málmiðnaðarfélagið hélt með erlendum starfsmönnum, í þeim tilgangi að reka út þá starfsmenn sína sem sóttu fundinn," segir Örn Friðriksson, formaður VM. „Hann var ekki beinlínis með hótanir, en vildi að þeir færu út og sagði að þeir ættu ekkert erindi á fundinn," sagði Örn. Hann segir að maðurinn hafi fullyrt að starfsmennirnir væru aðilar að öðru stéttarfélagi. „En þeir eru í okkar félagi. Það er alveg á hreinu," segir Örn í samtali við Vísi. Örn segir að Pólverjarnir hafi engan áhuga haft á því að yfirgefa fundinn, enda hafi þeir haft ýmsar spurningar sem þeir vildu bera upp. „Þetta var mjög góður fundur. Það var ýmislegt sem mennirnir vissu ekki um réttindi sín. Til dæmis um launagreiðslur í veikindum, orlofslaun og fleira," segir Örn. Örn bendir einnig á að í sumum tilfellum væru mennirnir ekki að fá greitt samkvæmt réttum launatöxtum. „Þeir spurðu líka um iðnréttindi. Sumir þeirra eru með réttindi úr heimalandi sínu en eru samt að fá greitt hérna sem aðstoðarmenn," bætir Örn við.
Mest lesið „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ Innlent Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Erlent Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum Innlent „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent Segir ótímabært að ræða undanþágur Innlent Sá sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Innlent Fleiri fréttir „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Sjá meira