Einhleypir Íslendingar stofna klúbb 12. júlí 2007 10:00 Anna Magnea opnaði heimasíðuna soloklubburinn.com þar sem einhleypir geta komið saman og skemmt sér. „
Þessi hugmynd kviknaði nú bara þegar ég var eitthvað að ráfa á netinu og komst í raun um að það er enginn félagsskapur fyrir einhleypa,“ segir Anna Magnea Harðardóttir, fertugur grunnskólakennari í Hofsstaðarskóla. Hún kom á fót vefsíðunni soloklubburinn.com fyrr á þessu ári þar sem einhleypum Íslendingum gafst kostur á að kynnast öðrum í svipaðri stöðu. Og vefsíðan hefur blómstrað frá fyrsta degi. Félagar eru nú yfir sjötíu talsins á milli fertugs og fimmtugs og virkir hópar á borð útivistarklúbbinn fara þrisvar í viku í göngur. Auk þess stendur félagsskapurinn fyrir ferðum í leikhús og bíó og fer saman út að borða. Anna Magnea tekur hins vegar skýrt fram að félagsskapurinn er hvorki staður fyrir daður né einhver kynlífsklúbbur. „Þetta eru bara góðir vinir sem nenna ekki alltaf að vera þriðja hjólið undir giftu félögunum,“ segir Anna Magnea og skellir upp úr. Yfir sjötíu manns eru virkir á vefsíðunni en innganga í félagið er háð nokkrum skilyrðum. Þannig þurfa áhugasamir að mæta á kaffihúsafund á sunnudegi til að gefa upp kennitölur sínar en Anna Magnea segir þetta eingöngu gert til að halda hvers kyns vitleysingum frá vefnum. „Hann er harðlæstur og fólk ræðir þar sín mál undir nafni,“ segir Anna. Konur eru í miklum meirihluta í félagsskapnum og vill Anna meina að karlar séu svolítið hægari af stað en hún hvetur þá endilega til að hafa samband. „Við höfum rætt að hafa nokkurs konar stuðningsfulltrúa sem fólk getur haft samband við og mætt með á fundina,“ útskýrir Anna.
Mest lesið „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Lífið Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu Bíó og sjónvarp „Það voru margir með tár á hvarmi“ Lífið Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Lífið Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Lífið Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Menning Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni Lífið Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Lífið „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Sjá meira