Umhverfismat vegna virkjana í neðri Þjórsá, hneyksli að mati jarðfræðings Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar 12. júlí 2007 19:26
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir jarð- og umhverfisfræðingur segir umhverfismat vegna virkjana í neðrihluta Þjórsár hneyksli og skammarlega illa gert. Stefán Thors skipulagsstjóri segir að umhverfismatsferlið vegna virkjananna hafi verið opið og lýðræðislegt og ítarlega fjallað um allar kærur sem bárust. Ingibjörg Elsa starfaði hjá Línuhönnun í átta ár og vann að umhverfismatii meðal annars fyrir Suðurstrandaveg og færslu Hringbrautar, vekur máls á þessu á heimasíðu sinni. Hún segir meðal annars að Landsvirkjun ætli samkvæmt umhverfismatinu að byggja laxastiga þannig að laxinn komist upp yfir stíflurnar en ekki sé gert ráð fyrir því að seiðin komist niður ána. Þá segi í skýrslunni að lágmarksrennsli verið viðhaldið í Þjórsá, en þetta rennsli muni sveiflast og fáránlegt sé að halda öðru fram en að miklar breytingar verði á lífríki. Ekkert komi fram um það hvaða afleiðingar það hafi fyrir líf í sjónum þegar framburður Þjórsár komist ekki lengur til sjávar. Öll þau næringarefni sem fari þar forgörðum geti haft veruleg áhrif á fiskistofna og dýralíf við suðurströndina. Þá sé virkjanasvæðið sundursprungið, martröð allra jarðfræðinga og upptakasvæði margra stærstu Suðurlandsskjálfta landsins. En fimm blaðsíðna jarðfræðiskýrslan sem fylgdi með umhverfismatinu hafi einfaldlega sagt að rannsaka þyrfti svæðið nánar. Það sé látið duga. Ingibjörg Elsa sagði í samtali við fréttastofu í dag að hugsunin með umhverfismati væri sú að allar upplýsingar um framkvæmdir ættu að liggja fyrir. Hún sé fyrst og fremst að gagnrýna Skipulagsstofnun og benda á að upplýsingar um jarðfræði hafi verið mjög ófullkomnar þegar skýrslan var gerð. Ef einhverjar aðrar upplýsingar liggi fyrir í dag þá hafi þær ekki komið fyrir sjónir almennings. Stefán Thors skipulagsstjóri segir að umhverfismatsferlið vegna virkjananna hafi verið opið og lýðræðislegt og það hafi verið fjallað ítarlega um allar kærur sem hafi borist. Umhverfisráðherra hafi staðfest úrskurði stofnunarinnar og ferlinu sé nú lokið. Hann segir ekki útilokað að gert verði nýtt umhverfismat vegna virkjananna til að mynda ef gerðar hafi verið breytingar á framkvæmdinni. Þá þurfi Landsvirkjun að tilkynna þær svo hægt sé að taka afstöðu til þess hvort þær kollvarpi eldra mati. Engar slíkar breytingar hafi verið tilkynntar enn sem komið er.
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira