Staðan í málum Þróunarfélagsins verri eftir daginn 6. desember 2007 15:33 Atli Gíslason, þingmaður VG.
Atli Gíslason, þingmaður VG segir að staðan í málefnum Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar og sala þess á eignum á vellinum sé verri ef eitthvað er í dag en hún var í gær, þrátt fyrir skýrslu forsætisráðherra um málið. „Það komu engar skýringar fram og ég hef enn ekki fengið þau gögn sem ég hef óskað eftir," segir Atli í samtali við Vísi. Hann segir Jón Bjarnason kollega sinn hafa séð kaupsamningana sem gerðir voru þegar Háskólavellir keyptu 1700 íbúðir á gamla varnarsvæðinu og þegar BASE keypti flugskýli. „Í þeim er gert ráð fyrir að skipta megi eignunum niður á fleiri félög. Ég lít svo á að með þessari klausu geti þeir skipt góssinu niður á milli flokksgæðinga," segir Atli en þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa gagnrýnt tengsl sem þeir segja á milli kaupenda eignanna og Sjálfstæðisflokksins. Atli gagnrýnir einnig samfylkingarmenn fyrir frammistöðu sína á þingi í dag. „Samfylkingin fór í fullkomna málsvörn fyrir Sjálfstæðisflokkinn og gagnrýnir þetta ekkert þrátt fyrir stefnu flokksins og frægar Borgarnesræður formannsins." Að mati Atla er Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ,og stjórnarmaður í þróunarfélaginu, „bullandi vanhæfur" gagnvart stjórnsýslulögum. „Nánir samstarfsmenn í sveitarstjórn eiga ekki að eiga viðskipti við hvort annan," segir Atli og á þá við að Steinþór Jónsson, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ á hlut í BASE, fyrirtækinu sem keypti byggingar á flugvallarsvæðinu á 700 milljónir króna. Atli segist vita til þess að fólk hafi boðið í stakar skemmur og segir hann verðtilboð í þær gefa til kynna að BASE hafi fengið skemmurnar á spottprís. Atli segist einnig efast um að úttekt Ríkisendurskoðunar eigi eftir að skila miklu. „Ég spyr mig hvort Ríkisendurskoðun, sem er endurskoðandi Þróunarfélagsins, geti endurskoðað sjálft sig. Í svona máli tel ég því eðlilegt setja á stofn sjálfstæða rannsóknarnefnd.
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Fleiri fréttir Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ Sjá meira