Árni vill að Bjarni Harðar biðjist afsökunar 6. desember 2007 16:35 MYND/GVA
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ sergir Bjarna Harðarson, þingmann Framsóknarflokksins hafa farið með „algjör ósannindi" á Alþingi í dag. Bjarni sagði í ræðustól að sér hefði verið sagt að Árni ætti persónulega í Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar og í Keili. Árni krefst þess að Bjarni biðjist afsökunar. Á Alþingi í dag flutti forsætisráðherra skýrslu um málefni Þróunarfélagsins og í umræðum á eftir lét Bjarni Harðarson þau orð falla að sér væri sagt að auk þess að sitja í stjórnum fyrirtækjanna tveggja fyrir hönd Reykjanesbæjar ætti Árni persónulega hluti í fyrirtækjunum. „Þarna flytur hann algjör ósannindi," segir Árni Sigfússon í samtali við Vísi. „Ég á engra persónulegra hagsmuna að gæta í einu einasta fyrirtæki á Vallarheiðinni," segir Árni og bætir því við að hann sitji í stjórnum fyrirtækjanna sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar. „Mér finnst eðlilegt að þingmaðurinn biðjist velvirðingar á þessum ummælum," segir Árni. Að mati Árna er umræðan öll mjög ósanngjörn. „Hún gengur beinlínis út á að níða niður mikilvægt verkefni sem vel hefur verið staðið að þó ég segi sjálfur frá." Árni gefur ennfremur lítið fyrir fullyrðingar þess efnis að hann hafi verið vanhæfur þegar Þróunarfélagið seldi BASE, fyrirtæki sem Steinþór Jónsson bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ á hlut í, skemmur á vallarsvæðinu. „Það er gjörsamlega út í hött. Ég er ekki á neinn hátt skyldur Steindóri svo ég viti til og ég sænga heldur ekki með honum. Ég veit því ekki hvaða ástæður ættu að gera mig vanhæfan í málinu. Það er ekki nóg að hann skuli vera bæjarfulltrúi og í Sjálfstæðisflokknum, það gerir hann ekki vanhæfan til að sinna viðskiptum sem koma þeirri staðreynd ekkert við," segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ.
Mest lesið Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Innanlandsflugi aflýst Innlent Innflytjendamálin almenningi efst í huga Innlent Fleiri fréttir Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sektaður um hundruð þúsunda fyrir að sparka í hund Stýra fjármálum og mannauðsmálum Þjóðleikhússins Sló mann í höfuðið með glerflösku á ísfirskum skemmtistað Ekið á konu á Langholtsvegi Sjá meira