Stungið undan Framsókn um helgina? 16. maí 2007 18:52
Margir spyrja hvort atburðarásin eftir þingkosningarnar vorið 1995, þegar Davíð Oddsson skipti Alþýðuflokki út fyrir Framsóknarflokk eftir nokkurra daga viðræður, kunni að endurtaka sig nú. Kringumstæður í stjórnmálunum nú eru að mörgu leyti líkar.Í þingkosningunum þann 8. apríl 1995 náðu þáverandi stjórnarflokkar, Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur, eins manns meirihluta, og raunar nákvæmlega sömu þingmannatölu og núverandi stjórnarflokkar hafa eftir kosningarnar nú. Sjálfstæðisflokkur fékk þá 25 þingmenn, eins og nú, og Alþýðuflokkur sjö þingmenn, eins og Framsóknarflokkur nú, en Alþýðuflokkurinn tapaði þremur þingsætum þá. Þeir Davíð Oddsson og Jón Baldvin Hannibalsson fengu engu að síður báðir umboð þingflokka sinna og hófu þeir viðræður um endurnýjun stjórnarsamstarfsins í dymbilviku eftir kosningarnar 1995. Fyrstu dagana benti allt til þess að þeir Davíð og Jón Baldvin myndu endurnýja samstarf sitt og eindreginn vilji virtist vera innan þingflokkanna til að halda samstarfi flokkanna áfram. Páskar voru hins vegar að nálgast og því gáfust aðeins þrír virkir dagar til viðræðna. Viðræðuhlé var gert yfir páskana en á meðan gerðist það hins vegar að þeir Davíð og Halldórs Ásgrímsson fóru að ræða saman á laun og strax eftir páska varð ljóst að þeir ætluðu sér að mynda ríkisstjórn. Á fyrsta virka degi eftir páska tilkynnti Halldór Ásgrímsson þáverandi forseta Íslands, Vigdísi Finnbogadóttur, að Framsóknarflokkurinn hygðist fara í viðræður við Sjálfstæðisflokk og daginn eftir boðaði Vigdís forseti Davíð Oddsson forsætisráðherra á sinn fund og afhenti honum nýtt umboð til myndunar ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, sem síðan hefur ríkt í alls tólf ár. Og nú er spurningin hvort frídagurinn á morgun, uppstigningardagur, og fríhelgin framundan, verði notuð eins og páskafríið forðum, til að hitta nýja menn á laun.
Mest lesið Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Innlent „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Innlent „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Innlent Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ Innlent Pútín sagður hafa valið Witkoff Erlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Epstein-skjölin birt Erlent Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa Innlent Fleiri fréttir Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Leggja hald á skip á alþjóðahafsvæði undan ströndum Venesúela Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Framlög til einkarekinna fjölmiðla næstum tvöfaldast Meðferð við spilafíkn loks niðurgreidd af Sjúkratryggingum Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Íslendingar lentu í alvarlegu slysi í Suður-Afríku Stóraukið fjármagn til Frú Ragnheiðar Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Sjá meira