Vísar ásökunum Jóhannesar á bug 16. maí 2007 14:21 Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra. MYND/GVA
Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir ásakanir Jóhannesar Jónssonar í Bónus, um að hann misnoti embætti sitt úr lausu lofti gripnar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Björn sendi frá sér fyrir skemmstu undir fyrirsögninni „Stöldrum við - hugsum alvöru málsins." Hann segir ásakanir Jóhannesar varpa ljósi á einkennilegan hugarheim og lýsir yfir áhyggjum af þróun stjórnmálastarfs og réttarríkisins hér á landi. Yfirlýsing Björns Bjarnasonar: „Pólitísk auglýsing Jóhannesar Jónssonar kaupmanns gegn mér birtist í öllum dagblöðum föstudaginn 11. maí í því skyni að hafa áhrif á kjósendur í Reykjavík suður í kosningunum daginn eftir. Meira en 80% kjósenda flokksins höfðu áskorun Jóhannesar að engu. Í fréttatíma sjónvarpsins að kvöldi 15. maí var látið að því liggja, að óvenjulegt framtak Jóhannesar mætti rekja til þess, hvernig staðið var að því að auglýsa embætti ríkissaksóknara. Þetta er alrangt. Jóhannes birti auglýsingu sína til að ófrægja embættismenn, sem hafa komið að ákærum í Baugsmálinu svonefnda, auk mín, sem á engan hlut að ákærunum. Baugsmálið var hafið, áður en ég varð dómsmálaráðherra. Til minna kasta kom haustið 2005, þegar ég setti Sigurð T. Magnússon, héraðsdómara, sérstakan saksóknara í málinu. Fyrir nokkrum mánuðum setti ég síðan Rúnar Guðjónsson, sýslumann í Reykjavík, ríkislögreglustjóra í skattsvikamáli tengdu Baugsmönnum, en það er til rannsóknar hjá efnahagsbrotadeild. Þegar ég setti Sigurð T. Magnússon töldu Baugsmenn mig vanhæfan og létu árangurslaust á þá skoðun sína reyna fyrir dómstólum. Í auglýsingunni gaf Jóhannes Jónsson meðal annars til kynna, að aðstoðarlögreglustjórinn í Reykjavík hefði eitthvað „á mig" og þess vegna myndi ég skipa hann ríkissaksóknara. Þessi kenning varpar ljósi á einkennilegan hugarheim auglýsandans og síðan meginboðskapinn: Vegna auðs míns og verslunarumsvifa skal ég hafa mitt fram! Í ljósi síendurtekinna yfirlýsinga Jóhannesar um pólitískt samsæri sjálfstæðismanna gegn sér og fjölskyldu sinni kemur í sjálfu sér ekki á óvart, að hann beiti auði sínum og viðskiptaáhrifum gegn stjórnmálamönnum, sem hann telur standa í vegi fyrir því, að hann geti farið öllu sínu fram. Ekkert réttarríki býr auðmönnum hins vegar eftirlitslausar aðstæður. Það þjónar almannahagsmunum, að óháðir, opinberir aðilar fylgist með hvernig stjórnendur og ráðandi hluthafar almenningshlutafélaga fara með þau verðmæti, sem þeim er fyrir treyst. Með árásum á mig og ákæruvaldið er Jóhannes að gera veika stöðu almennra fjárfesta á Íslandi enn verri gagnvart stóreigendum. Hér ráða einkahagsmunir ferð en ekki virðing fyrir rétti annarra. Takist með opinberum, persónulegum árásum að hræða lögreglu og aðra eftirlitsaðila frá því að sinna skyldum sínum er vegið að hagsmunum fleiri en þeirra, sem árásunum sæta. Í framhaldi af auglýsingunni kemur á óvart, að almennt hafa stjórnmálamenn og álitsgjafar látið eins og hún sé næsta eðlilegt ef ekki sjálfsagt nýmæli. Um svipað leyti og Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri/grænna, kveinkaði sér undan því, að ungir framsóknarmenn hefðu birt af sér skopmyndir, lýsti hann skilningi á framtaki Jóhannesar. Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, hlakkar yfir því, að ég lækka á þingmannalista. Egill Helgason álitsgjafi segir: „Í alvörunni. Þetta er ein aðferð kjósenda til að segja skoðun sína - það næsta sem við komumst persónukjöri í þingkosningum. Það á að taka mark á slíkum skilaboðum. Annars eru stjórnmálamenn að gefa kjósendum langt nef." Ég lýsi áhyggjum yfir þróun stjórnmálastarfs og raunar réttarríkisins sjálfs, sé talið sjálfsagt og eðlilegt að beita ofríki í krafti auðs í því skyni, að tryggja sér viðhlæjendur á þingi, í réttarsalnum og hjá ákæruvaldinu. Er ekki tímabært að stalda við og líta á alvöru málsins?"
Mest lesið Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Innlent „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Innlent „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Innlent Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ Innlent Pútín sagður hafa valið Witkoff Erlent Epstein-skjölin birt Erlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa Innlent Fleiri fréttir Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Framlög til einkarekinna fjölmiðla næstum tvöfaldast Meðferð við spilafíkn loks niðurgreidd af Sjúkratryggingum Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Íslendingar lentu í alvarlegu slysi í Suður-Afríku Stóraukið fjármagn til Frú Ragnheiðar Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Hluti auglýsingatekna Rúv renni til einkarekinna fjölmiðla „Við látum alltaf taka okkur í bakaríið á endanum“ Sjá meira