Innlent

Vonast til að næsta ríkisstjórn viðhaldi stöðugleika

Seðlabanki Íslands ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í 14,25 prósentum. Davíð Oddsson seðlabankastjóri vonast til að næsta ríkisstjórn, hver sem hún verður, viðhaldi stöðugleika til samræmis við markmið Seðlabankans.

Það er í sjálfu sér ekki minni ákvörðun að breyta ekki stýrivöxtum en að breyta þeim. Nú í mars mat Seðlabankinn það svo að það yrði ekki svigrúm til að lækka vexti fyrr en í fyrsta lagi á þriðja ársfjórðungi eða með hausti. Það hefur í sjálfur sér lítið breyst nema að því leyti að Seðlabankinn telur að spenna sé enn þá töluverð, jafnvel meiri en talið var í mars.

„Hraður atvinnuvöxtur bendir til þess að umsvif í efnahagsífinu verði a.m.k. ekki minni næstu mánuði en fólst í spánni. Hagstæð skilyrði á alþjóðlegum fjármálamörkuðum, háir innlendir vextir og bjartsýni í efnahagslífinu hafa stuðlað að háu gengi krónunnar. Mikill viðskiptahalli og tiltölulega hátt raungengi fela sem fyrr í sér verulega hættu á lækkun gengisins, t.d. ef alþjóðleg fjármálaskilyrði verða óhagstæðari. Verðbólguhorfur gætu þá versnað, einkum ef gengið lækkar áður en dregur úr spennu á vinnumarkaði sem engin teikn eru um enn," sagði Davíð.

„Þótt horfurnar nú séu í meginatriðum svipaðar er ítrekað að meiri hætta er talin á að verðbólga verði meiri en spáð var en að hún verði minni. Nýleg verðþróun, áframhaldandi spenna á vinnumarkaði, mikill viðskiptahalli og sterk eftirspurn undirstrika þessa hættu. Versni verðbólguhorfur frá því sem gert var ráð fyrir í marsspánni mun Seðlabankinn þurfa að bregðast við, sagði hann enn fremur.

Seðlabankastjóri var spurður að því hvort núverandi þreifingar í pólitík og útkoman úr þeim kynni að hafa áhrif á stefnu Seðlabankans á næstu mánuðum. Hann sagði erfitt að meta það. „Meginatriðið er þó það að Seðlabankinn heldur sínu striki óháð því hvaða stjórn er í landinu en vonast til að þær ákvarðanir sem stjórnvöld taka á hverjum tíma flútti vel við þá stefnu sem Seðlabankanum er gert að fylgja," sagði Davíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×