Innlent

Sameinar tvö af glæsilegustu einbýlishúsum borgarinnar

Andri Ólafsson skrifar

Milljarðamæringurinn Hannes Smárason fékk í síðustu viku samþykkt í skipulagsráði Reykjavíkur að sameina tvær lóðir sem hann er eigandi að við Fjölnisveg í Reykjavík.

Hannes á tvö af glæilegustu einbýlishúsunum við götuna og ætlar að tengja þau með sameiginlegum bílskúr og sameiginlegum svölum.

Húsin eru númer níu og ellefu við Fjölnisveg í Þingholtunum en fermetraverðið í þeirri götu er eitt það hæsta í allri Reykjavík.

Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir við bæði húsin síðan Hannes festi kaup á þeim.

Í umsókninni sem arkitekt Hannesar, Halldóra Vífilsdóttir, lagði fyrir Skipulagsráð kemur fram að fyrirhuguð framkvæmd sé að fullu afturkræf og að hún komi ekki til að breyta götumynd Fjölnisvegar.

Fjölnisvegur ellefu er 368 fermetrar og Fjölnisvegur níu 432 fermetrar, alls 800 fermetrar og Hannes því ekki á flæðiskeri staddur þegar að svefnplássinu kemur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×