Ingibjörg Sólrún hefur enga trú á því að Jón Baldvin bjóði fram 29. janúar 2007 12:18
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, hefur enga trú á því að Jón Baldvin Hannibalsson geri alvöru í því að bjóða fram nýjan lista í alþingiskosningum. Hann skilji manna best að það megi ekki stökkva frá borði þrátt fyrir ágjöf. Það viti þeir best sem sjálfir hafi staðið í brúnni. Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins, orðaði möguleikann á slíku framboði í Silfri Egils í gær. Heimildir fréttastofu herma að Jón Baldvin hafi rætt við Ómar Ragnarsson og jafnvel fleiri um að ganga til liðs við framboðið. Hart hefur verið sótt að Ingibjörgu Sólrúnu undanfarið vegna lélegs árangurs Samfylkingarinnar í skoðanakönnunum. Talað er um að flokkurinn sé í frjálsu falli en kannanir sýna fylgi í kringum tuttugu prósent og jafnvel lægra. Ingibjörg Sólrún segir erfitt að segja til um hvað valdi þessu, þarna geti komið til margir ólíkir þættir, bæði umræða um innflytjendamál og umhverfismál. Þá kunni að vera að flokkurinn hafi ekki yddað stefnu sína nægilega vel. Hún segist þó taka niðurstöðum slíkra kannanna með fyrirvara enda væri stór hluti kjósenda enn óákveðinn. Hún sagði aðspurð að það væri engin óeining innan Samfylkingarinnar, flokksmenn væru ekki að troða illsakir hver við annan. Þetta væri einfaldlega spurning um að ásýndin yrði skýrari. Ingibjörg Sólrún var að lokum spurð að því hvort það hefði verið rætt innan flokksins að hún stigi niður og annar tæki við formennsku fyrir alþingiskosningar. Hún sagði spurninguna fáránlega. Fólk gefist ekki upp þrátt fyrir tvær vondar skoðanakannanir. Samfylkingin muni ganga frá næstu kosningum með miklu meira fylgi en þessar kannanir gefi til kynna.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Sjá meira