Njóta stuðningsins 16. mars 2007 06:30 Þær Helena, Agla og Fríða urðu bestu vinkonur í áttunda bekk. fréttablaðið/skessuhorn/MM
Fegurðarsamkeppnin Ungfrú Vesturland fór fram á Akranesi um síðustu helgi. Svo skemmtilega vildi til að stúlkurnar sem lentu í þremur efstu sætunum eru bestu vinkonur til margra ára. Agla Harðardóttir hreppti titilinn, Helena Rúnarsdóttir lenti í öðru sæti og það þriðja hlaut Fríða Ásgeirsdóttir. „Ég og Helena fluttum upp á Skaga árið 2000, þegar við vorum í sjöunda bekk,“ útskýrði Agla. Þar kynntust þær Fríðu, og ekki leið á löngu þangað til að stelpurnar smullu saman. „Við urðum bestu vinkonur í áttunda bekk,“ sagði Agla. Vináttuböndin hafa ekki slitnað með árunum heldur. „Vinkonur fjarlægjast nú samt oft aðeins við að byrja í samböndum,“ sagði Agla. fegurstu fljóðin Vinkonurnar í nýafstaðinni fegurðarsamkeppni Vesturlands, þar sem þær lentu í þremur efstu sætunum. fréttablaðið/skessuhorn/mm Ákvörðunin um að taka þátt í keppninni var þó ekki tekin í sameiningu. „Nei, það hittist bara einhvern veginn þannig á, sem var náttúrlega frábært,“ sagði Agla. Henni þótti ekki erfiðara að keppa á móti vinkonum sínum en öðrum í hópnum, og sagði engum ríg hafa verið fyrir að fara. „Nei, alls ekki,“ sagði hún og hló við. „Hópurinn var allur rosalega góður,“ bætti hún við. Stúlkurnar sem lenda í efstu sætunum þremur keppa í Ungfrú Ísland 2007 síðar í vor. Agla kveðst mjög ánægð með að fá að undirbúa sig í félagsskap vinkvenna sinna, og njóta stuðnings þeirra. „Við erum rosalega ánægðar með að fá að fara í keppnina saman,“ sagði hún.
Tengdar fréttir Michelin-kokkur á Holtinu Hótel Holt bauð gestakokkinn Jean-Yves Johany velkominn til leiks í vikunni, en hann er fyrstur þriggja franskra kokka sem kemur hingað til lands í tengslum við frönsku menningarhátíðina Pourquoi-pas?. Kokkarnir hafa allir hlotið eina eða tvær Michelin stjörnur og því um mikinn feng fyrir íslenska matarunnendur að ræða. Tveir matreiðslumeistaranna verða á Hótel Holti, en sá þriðji hjá Sigga Hall. 15. mars 2007 07:00 Mest lesið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Fleiri fréttir „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Sjá meira
Michelin-kokkur á Holtinu Hótel Holt bauð gestakokkinn Jean-Yves Johany velkominn til leiks í vikunni, en hann er fyrstur þriggja franskra kokka sem kemur hingað til lands í tengslum við frönsku menningarhátíðina Pourquoi-pas?. Kokkarnir hafa allir hlotið eina eða tvær Michelin stjörnur og því um mikinn feng fyrir íslenska matarunnendur að ræða. Tveir matreiðslumeistaranna verða á Hótel Holti, en sá þriðji hjá Sigga Hall. 15. mars 2007 07:00