Dýratilraunir hjá deCode og víðar 22. október 2007 16:44 MYND/Getty
Dýratilraunir fara fram á nokkrum stöðum hér á landi, þar á meðal hjá Íslenskri erfðagreiningu sem notar mýs og rottur til framhaldsrannsókna. Íslensk erfðagreining auglýsti í blöðum í gær eftir starfsmanni á dýratilraunastöð félagsins og segir í starfslýsingunni að starfið felist í aðstoð við dýratilraunir. Fær starfsmaður sérstaka þjálfun fyrir starfið en hann á meðal annars að hafa umsjón með tilraunadýrum. Menntun á sviði líffræði er sögð æskileg fyrir starfið og reynsla af vinnu við tilraunadýr eða á dýratilraunastöð er sögð kostur. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að félagið hafi komið upp dýratilraunastöð þegar í ljós hafi komið á sínum tíma að engin góð aðstaða hefði verið til slíks á Íslandi. Félagið vinni bæði með dýr og frumur í rannsóknum sem gerðar eru í framhaldi af uppgötvun á erfðavísum sem tengist tilteknum sjúkdómum. Þannig kanni menn áhrif lyfja sem félagið sé að þróa. Tilraunir undir ströngu eftirliti Kári segir enn fremur að noti fyrst og fremst mýs í tilraunir en einnig rottur. Íslensk erfðagreining sé undir ströngu eftirliti yfirdýralæknis vegna þessa og hafi sótt um leyfi til tilraunanna þar sem fram komi að þær samræmist mannúðlegum sjónarmiðum. Kári segir tilraunirnar nauðsynlegar í starfi Íslenskrar erfðagreiningar en þær séu langt í frá umfangsmiklar. Aðspurður segir hann mýsnar keyptar erlendis frá en umfang rannsóknanna sé ekki það mikið að félagið hafi ráðist í að byggja upp undaneldisstöð eins og tíðkist erlendis. Þá bendir Kári á að dýratilraunir fari fram á nokkrum stöðum hér á landi, þar á meðal að tilraunastöðinni að Keldum og við læknadeild Háskóla Íslands.
Mest lesið Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Innlent Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Innlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Fleiri fréttir Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Sjá meira