Ólafur F. furðar sig á umræðu um veikindi sín 30. nóvember 2007 19:12
Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi F-listans og óháðra sem tekur aftur sæti í borgarstjórn eftir helgina, furðar sig á umræðunni um veikindi sín og neitar að tjá sig frekar um málið að svo stöddu. Ólafur hefur síðustu mánuðina verið í veikindaleyfi og hefur Margrét Sverrisdóttir setið í hans sæti á meðan. Hlutskipti hans verður töluvert annað nú en þegar hann sat síðast í borgarstjórn, þá var hann í minnihluta en nú verður hann í meirihluta. Margrét hefur síðan nýr meirihluti var myndaður verið forseti borgarstjórnar og tekur Ólafur við því embætti. Ólafur staðfesti í samtali við fréttastofu í dag að hann væri að mæta aftur til starfa og að hann byggist við að stýra sínum fyrsta fundi á þriðjudaginn. Ekki er þó enn ljóst hvort og þá hvernig nefndarskipan F-listans og óháðra mun breytast með komu Ólafs. Ljóst er að innkoma Ólafs getur haft pólitísk áhrif. Ólafur hefur verið eindreginn stuðningsmaður þess að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni en Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur lýst því yfir að hann vilji að hann fari. Fjallað hefur verið um læknisvottorð sem barst borgaryfirvöldum að Ólafur væri orðinn heill heilsu og hvort að eðlilegt sé að slíkt vottorð sé lagt fram þegar borgarfulltrúar mæta aftur til vinnu eftir veikindi. Í samtali við fréttastofuna furðaði Ólafur sig á umræðunni um en sagðist ekki tilbúinn að tjá sig nánar um málið að svo stöddu.
Mest lesið Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Innlent Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Erlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent Fleiri fréttir Inga of upptekin til að funda: Foreldrahúsi verður lokað innan tveggja vikna „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sjá meira