Sendiráðsstarfsmaðurinn var með stúlku upp á arminn Breki Logason skrifar 30. nóvember 2007 13:40 Aron Pálmi Ágústsson hitti starfsmann Sendiráðs Bandaríkjanna í miðborg Reykjavíkur. „
Hann sagði að Aron Pálmi ætti að tala við sig ef hann lenti í einhverjum vandræðum," segir Eyþór Sigmundsson félagi Arons Pálma um ástæðu þess að starfsmaður Bandaríska sendiráðsins lét Aron fá nafnspjald í miðborg Reykjavíkur á dögunum. Aron Pálmi sagði í fréttum Stöðvar 2 í vikunni að Arnar B. Sigurðsson starfsmaður sendiráðsins hefði komið að máli við sig í miðbæ Reykjavíkur fyrir um mánuði síðan. Hann hafi rétt sér nafnspjald og sagt að hlutverk sitt væri að fylgjast með ferðum Arons. Hann hélt því einnig fram að Arnar hefði hótað því að ef hann léti sjá sig í sendiráðinu myndi Arnar sjá til þess að Aron yrði handtekinn. Eyþór sem er vinur frænda Arons Pálma var með honum umrætt kvöld. Hann brá sér aðeins frá en kom inn í samtal Arons og sendirðáðsstarfsmannsins. „Hann var eitthvað að tala um að Aron Pálmi yrði handtekinn ef hann færi aftur til Bandaríkjanna, þannig skildi ég það allavega," segir Eyþór en samtalið átti sér stað fyrir utan Vöffluvagninn við Lækjartorg. Eyþór segir að Arnar sendiráðsstarfsmaður hafi líklega verið búinn að fá sér nokkra bjóra og hann hafi verið með stúlku upp á arminn, líklega kærustu sína. „Hann var eitthvað að spila sig stórt en stelpan dró hann síðan í burtu," segir Eyþór sem hefur nokkrum sinnum kíkt með Aroni Pálma út á lífið. „Þetta er mjög fínn strákur og hann er stjarna á skemmtistöðunum. Það eru allir að tala við hann og hann heilsar öllum." Eyþór segir að Aron hafi ekki tekið orð sendiráðsstarfsmannsins alvarlega eftir að Arnar yfirgaf vettvang. „Hann sagði þessi orð ómerk þar sem þessi gaur væri ekkert háttsettur í sendiráðinu." Sendiráð Bandaríkjanna sagði við Vísi í gær að ekkert yrði aðhafst í málinu fyrr en formleg kvörtun hefði borist. Aron hefur hinsvegar sjálfur hringt bæði í Utanríkisráðuneytið og Sendiráðið og kvartað yfir framkomu starfsmannsins.
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Erlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Innlent „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Innlent Áttu góðan og langan fund í dag Innlent Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Innlent Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Innlent Fleiri fréttir Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Margt í miðborginni og annríki hjá lögreglu Hildur með pálmann í höndunum Lokatölur úr Flóahreppi: Meirihlutinn bætti við sig manni Sjá meira