Leikarinn Isaiah Washington, sem var rekinn úr læknaþættinum Grey"s Anatomy vegna ummæla sinna um samkynhneigða, segir sjónvarpsstöðina ABC hafa rekið rangan náunga.
Washington segir að fyrrum kollegi sinn T.R. Knight hafi ýtt undir það að hann skyldi vera rekinn og í raun og veru hefði Knight átt að vera rekinn í stað hans. Var það einmitt Knight sem kom út úr skápnum skömmu eftir ummæli Washington baksviðs á Golden Globe-verðlaunahátíðinni í janúar síðastliðnum.
Íhugar málshöfðun
Washington, sem er að íhuga málshöfðun, hefur sakað Knight um að hafa nýtt sér ummæli sín til að fá launahækkun og stækka hlutverk sitt í þættinum.
Washington segist ekki hafa talað niður til Knight vegna kynhneigðar hans er hann reifst við meðleikara sinn Patrick Dempsey, þrátt fyrir að Knight hafi haldið því fram í spjallþætti Ellen DeGeneres. „Það er algjör lygi,“ sagði Washington. „Ég notaði þetta orð í rifrildi við Patrick og baðst afsökunar á því. Við tókumst í hendur og héldum áfram að vinna.“ Mjög vonsvikinnWashington var harðlega gagnrýndur fyrir ummæli sín á Golden Globe-hátíðinni af samtökum samkynhneigðra. Baðst hann afsökunar á hegðun sinni og sagðist ætla í meðferð. Auk þess gaf hann út yfirlýsingu þar sem hann lýsti yfir iðrun sinni.
„Ég var ekki rekinn fyrir að tala illa um samkynhneigða. Ég gerði allt sem ég sagðist ætla að gera. Ég vildi að allir sæju að ég iðraðist. Ég er ekki reiður, heldur mjög vonsvikinn.“