Innlent

Öryggishnappar hættu að virka

Virkar ekki ef símkerfið slær út.
Virkar ekki ef símkerfið slær út.

Öryggishnappar Securitas hættu að virka þegar línu jarðstrengur slitnaði við Þelamörk í Hveragerði í gær. Hnapparnir, sem tengdir eru í gegnum símkerfið, duttu því út.



Öryggishnappur er borinn um háls eða úlnlið. Ef þrýst er á hann fæst beint talsamband við stjórnstöð Securitas hvar sem er í íbúðinni. Sjúkrabíll eða læknir er sendur á vettvang ef hætta steðjar að.



Að sögn Trausta Harðarsonar hjá Securitas er kerfið prófað tvisvar á dag. Ef samband næst ekki við öryggishnappinn er reynt að hafa samband við íbúana eða öryggisvörður sendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×