Gamaleikarinn Jim Carrey ætlar að framleiða og leika aðalhlutverkið í gamanmyndinni Sober Buddies. Fjallar hún um drykkfelldan forstjóra tölvufyrirtækis sem er fyrir rétti dæmdur til að taka með sér félaga á ráðstefnu í Las Vegas sem á að halda honum frá Bakkusi. Þróast málin þannig að félaginn, sem er leikinn af Carrey, missir sjálfur fótana í drykkjunni og lendir í hinum ýmsu vandræðum.
Carrey hefur einnig tekið að sér aðalhlutverkið í myndinni I Love You Philip Morris, sem fjallar um kvæntan mann sem er dæmdur í fangelsi þar sem hann verður ástfanginn af klefafélaga sínum.