Vilja aukið fé til að hækka laun hjúkrunarfræðinga 9. maí 2007 13:41
Fulltrúaþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga skorar á fjármálaráðherra að veita aukið fé til heilbrigðisstofnana svo hægt sé að hækka laun hjúkrunarfræðinga. Þá lýsir þingið yfir verulegum áhyggjum af fyrirsjáanlegum skorti á hjúkrunarfræðingum og skorar á stjórnvöld að bregðast við því með því að efla hjúkrunarnám í landinu. Í ályktunum sem samþykktar voru á fulltrúaþinginu er bent á að bráðnauðsynlegt sé að halda í vel menntaða og þjálfaða hjúkrunarfræðinga á heilbrigðisstofnunum og þá þurfi laun og starfsumhverfi stofnana að stuðla að eðlilegri nýliðun innan stéttarinnar. Enn fremur er bent á að efla þurfi hjúkrumarfræðideildir við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri. Fjölgun námsplássa í samtals 153 dugi einfaldlega ekki til að bæta núverandi skort á hjúkrunarfræðingum heldur muni skorturinn aukast næstu ár. Þá þurfi sérstakt átak til að fjölga kennurum í hjúkrunarfræði. Fulltrúaþingið fagnar hins vegar áformum stjórnvalda um fjölgun hjúkrunarrýma fyrir aldraða um 375 á næstu árum. Sú fjölgun kalli hins vegar á fjölgun hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða og því þurfi heilbrigðisráðherra að beita sér fyrir því að skilgreina betur þá hjúkrunarþjónustu sem veita skuli á hjúkrunarheimilum. Fagleg sjónarmið verði lögð til grundvallar í þeirri vinnu.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Sjá meira