Innlent

Engar breytingar á samþykktum HS án aðkomu allra eigenda

MYND/Lárus

Bæjarráð Hafnarfjarðar ítrekar á grundvelli hluthafasamkomulags milli fjögurra stærstu hluthafa Hitaveitu Suðurnesja frá því í sumar að engar breytingar verði gerðar á samþykktum og félagslegri stöðu fyrirtækisins án aðkomu allra eigenda þess.

Þetta er meðal þess sem fram kom í bókun fulltrúa Samfylkingarinnar og Vinstri - grænna á aukafundi bæjarráðs í morgun. Fram kemur í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ að á fundinum hafi Gunnar Svavarsson, fulltrúi Hafnfirðinga í stjórn Hitaveitu Suðurnesja, farið yfir eigendafundinn sem haldinn var á mánudaginn var.

Í bókun fulltrúanna er jafnframt bent að þeir þættir sem snúa að uppskiptingu Hitaveitunnar og fjallað er um í samrunasamkomulagi Reykjavik Energy Invest og Geysis Green Energy hafi ekki verið teknir fyrir á eigendafundi Hitaveitunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×