Lífið

Hugh Grant kemur sér í klandur

Stelpurnar hæstánægðar með félagsskapinn
Stelpurnar hæstánægðar með félagsskapinn

Háskólaár leikarans Hugh Grant eru löngu liðin en um helgina ákvað hann að endurvekja gamlar minningar og fór ásamt fríðu föruneyti ungra meyja í háskólapartý. Hann drakk ótæpilegt magn af ódýru víni, borðaði kalda pizzu og fór í sleik.

Stúlkan sem hlaut kossinn heitir Caroline Hargreaves og er frá Noregi. Hún er einungis tvítug og stundar nám við St. Andrews háskólann. Hún og vinkonur hennar hittu leikarann á bar og drógu hann með sér í stelpupartý.

Leikaranum var plantað í sófann og var samstundis umkringdur af æstum yngismeyjum. Þær höfðu auk þess vit á því að taka myndir af kappanum og voru þær komnar inn á netið löngu áður en þynnkan rann á hann daginn eftir. Á myndunum sést leikarinn hálf rænulaus í félagi við stúlkurnar sem enn voru í barnaskóla þegar frægasta mynd hans Four Weddings and A Funeral kom út. „Grant lék á alls oddi og reyndi til að mynda að giska á hvað hver og ein var að læra," segir Caroline í samtali við The Sun. „Hann er mjög viðkunnanlegur og sjarmerandi."

Grant hitti stúlkurnar eftir að hafa fyrr um daginn tekið þátt í golfmóti í St Andrews. Eftir partýið bauð hann Caroline og tveimur vinkonum hennar að koma með sér á Old Course hótelið þar sem hann dvaldi. „Hann keypti handa okkur kampavín og við spjölluðum saman. Síðan sagðist hann ætla á klósettið og við sáum hann ekki eftir það."

„Ekkert ósiðlegt átti sér stað," segir vinur leikarans í samtali við Daily mail. „Grant er frjálst að skemmta sér með hópi stúlkna. Það er ekki ólöglegt."

Ekki er þó víst að fyrrverandi kærustu leikarans, Jemimu Khan, sé skemmt en ekki er langt síðan þau slitu samvistum. Þá má í þessu samhengi rifja upp einn mesta skandal leikarans en árið 1995 var komið að honum í bíl í Los Angeles með vændiskonu í fanginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.