Hugh Grant kemur sér í klandur 9. október 2007 12:07 Stelpurnar hæstánægðar með félagsskapinn
Háskólaár leikarans Hugh Grant eru löngu liðin en um helgina ákvað hann að endurvekja gamlar minningar og fór ásamt fríðu föruneyti ungra meyja í háskólapartý. Hann drakk ótæpilegt magn af ódýru víni, borðaði kalda pizzu og fór í sleik. Stúlkan sem hlaut kossinn heitir Caroline Hargreaves og er frá Noregi. Hún er einungis tvítug og stundar nám við St. Andrews háskólann. Hún og vinkonur hennar hittu leikarann á bar og drógu hann með sér í stelpupartý. Leikaranum var plantað í sófann og var samstundis umkringdur af æstum yngismeyjum. Þær höfðu auk þess vit á því að taka myndir af kappanum og voru þær komnar inn á netið löngu áður en þynnkan rann á hann daginn eftir. Á myndunum sést leikarinn hálf rænulaus í félagi við stúlkurnar sem enn voru í barnaskóla þegar frægasta mynd hans Four Weddings and A Funeral kom út. „Grant lék á alls oddi og reyndi til að mynda að giska á hvað hver og ein var að læra," segir Caroline í samtali við The Sun. „Hann er mjög viðkunnanlegur og sjarmerandi." Grant hitti stúlkurnar eftir að hafa fyrr um daginn tekið þátt í golfmóti í St Andrews. Eftir partýið bauð hann Caroline og tveimur vinkonum hennar að koma með sér á Old Course hótelið þar sem hann dvaldi. „Hann keypti handa okkur kampavín og við spjölluðum saman. Síðan sagðist hann ætla á klósettið og við sáum hann ekki eftir það." „Ekkert ósiðlegt átti sér stað," segir vinur leikarans í samtali við Daily mail. „Grant er frjálst að skemmta sér með hópi stúlkna. Það er ekki ólöglegt." Ekki er þó víst að fyrrverandi kærustu leikarans, Jemimu Khan, sé skemmt en ekki er langt síðan þau slitu samvistum. Þá má í þessu samhengi rifja upp einn mesta skandal leikarans en árið 1995 var komið að honum í bíl í Los Angeles með vændiskonu í fanginu.
Mest lesið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Lífið Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum Lífið Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Lífið Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Lífið Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Lífið Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Tónlist Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Lífið Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Tónlist „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Lífið Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Lífið Fleiri fréttir Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn Sjá meira