Innlent

Margrét og Magnús Þór í slag

 

Margrét Sverrisdóttir fyrrverandi framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins ætlar að bjóða sig fram til varaformanns Frjálslynda flokksins á komandi flokksþingi. Þetta er haft eftir áreiðanlegum heimildum innan Frjálslynda flokksins. Margrét hafði tekið þessa ákvörðun fyrir skemmstu en dró sig í hlé til að hugsa sitt ráð þegar Guðjón Arnar Kristjánsson formaður flokksins lýsti yfir stuðningi við Magnús Þór Hafsteinsson, sem nú situr sem varaformaður. Hún hugleiddi þá stöðu sína upp á nýtt og útilokaði ekki framboð til formennsku í flokknum. Hún hefur nú tekið þá ákvörðun að halda sig við varaformanninn og verður væntanlega harður slagur milli þeirra tveggja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×