Beita þveröfugri aðferð við Akureyringa 23. janúar 2007 12:45
Borgaryfirvöld í Reykjavík ætla að beita þveröfugri hagfræði við bæjaryfirvöld á Akureyri, til að lokka fleiri farþega upp í strætisvagna sína. Með fjölgun farþega að markmiði hafa Akureyringar fellt fargjöldin niður, en til að ná sama markmiði ætla Reykvíkingar að hækka sín fargjöld til muna. Þessi reykvíska hagfræði stangast reyndar á við hugmyndir um jafnvægi á milli framboðs og eftirspurnar. En það er ekki nýtt að hagfræðingar borgarinnar fari ótroðnar slóðir og þarf ekki að fara nema nokkur misseri aftur í tímann til að rifja upp að þegar heitavatnsnotkun minnkaði til muna vegna náttúrulegra hlýinda greip Orkuveitan til þess að hækka gjaldskrána vegna minnkandi eftirspurnar. Viðtökur Akureyringa við niðurfellingunni láta ekki á sér standa því 60 prósent fleiri farþegar fóru með strætó þar í þriðju viku janúarmánaðar en í sömu viku í fyrra. Þar kostaði fargjaldið fyrir fullorðinn þó ekki nema 160 krónur, áður en það var fellt niður, en kostar 280 krónur í Reykjavík eftir hækkun. Fulltrúar Samfylkingarinnar, Vinstri - grænna og Frjálslynda flokksins í umhverfisráði borgarinnar mótmæla harðlega þessari hækkun og segja hana ganga í berhögg við þá stefnu borgarinnar að efla almenningssamgöngur. Hækkunin bitni auk þess á þeim sem síst skyldi og sé tvöfalt meiri en verðbólguspá fyrir þetta ár.
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegt tímabil klárast á dögunum Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Sjá meira