Verðlækkanir í lágvöruverslunum í samræmi við skattalækkanir 3. apríl 2007 16:14
Verðlækkanir í lágvöruverðsverslunarkeðjum í tengslum við lækkanir á virðisaukaskatti og vörugjöldum þann 1. mars voru í samræmi við útreikninga Hagstofunnar á tilætluðum áhrifum aðgerðanna. Þetta leiða fyrstu niðurstöður úr viðamiklum verðmælingum verðlagseftirlits ASÍ í matvöruverslunum á tímabilinu í ljós. Fram kemur í frétt á vef ASÍ að verðlagseftirlitið hafi hafið verðmælingar vegna þessa í desember í fyrra en frá þeim tíma og til febrúar á þessu ári hækkaði verðlag í lágvöruverðsverslunum á bilinu 0,2 - 2,2 prósent. Vegin verðhækkun á því tímabili var mest í verslunum Krónunnar en minnst í verslunum Bónuss. Þegar skoðaðar eru verðbreytingar á tímabilinu frá febrúar til mars, þegar opinberar álögur á matvörur voru lækkaðar, kemur hins vegar í ljós að verð í lágvöruverðsverslunum lækkaði á bilinu 6,4 - 11 prósent og þar var vegin verðlækkun minnst í verslunum Nettó en mest í verslunum Krónunnar. Hagstofa Íslands áætlaði í upphafi árs að lækkun á virðisaukaskatti myndi lækka verð á mat og drykkjarvörum um 7,4 prósent og niðurfelling á vörugjöldum um 1,3 prósent til viðbótar. Lækkun á virðisaukaskatti átti að skila sér í vöruverði til neytenda þegar breytingin tók gildi en lækkanir vegna niðurfellingar á vörugjöldum geta hins vegar tekið 1-2 mánuði að skila sér að fullu út í vöruverð að því er ASÍ greinir frá.
Mest lesið Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Erlent Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Erlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Innlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Fleiri fréttir Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Sjá meira