Flutti fyrirlestur í stærsta háskóla Bandaríkjanna 3. apríl 2007 10:31 Ólafur Ragnar Grímsson og John Glenn, fyrrverandi geimfari, ræða saman í gær
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, átti í gær fundi með forsvarsmönnum bæði Ohio-ríkis og Ohio-ríkisháskólans, stærsta háskóla Bandaríkjanna, þar sem hann flutti fyrirlestur um loftlagsbreytingar og hlutverk Íslands í þeirri baráttu. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá forsetaskrifstofunni kom fram ríkur vilji hjá forsvarsmönnum Ohio-háskólans til að efla samstarf við íslenska vísindasamfélagið um rannsóknir á fjölmörgum sviðum og voru undirritaðir þrír samningar milli Ohio-háskólans og þriggja íslenskra háskóla, Háskóla Íslands, Landbúnaðarháskólans og Háskólans á Akureyri. Þá voru jafnframt mótaðar tillögur um rannsóknarverkefni í landgræðslu, orkumálum, jöklafræðum og um aðgerðum gegn loftslagsbreytingum. Forseta Íslands var boðið að flytja opnunarfyrirlestur í nýrri alþjóðlegri fyrirlestraröð sem Ohio-háskóli hefur efnt til. Fyrirlestur forseta bar heitið The Challenges of Climate Change: Iceland - A Laboratory for Global Solutions. Hann fjallaði um framlag Íslands á sviði alþjóðlegra rannsókna og hvernig Íslendingar gætu með samvinnu við fremstu háskóla og rannsóknarstofnanir í veröldinni vísað veginn að nýjum lausnum í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og gróðureyðingu. Fyrirlesturinn fjallaði einnig á ítarlegan hátt um frumkvæði Íslendinga í nýtingu hreinnar orku, þátttöku landsins alþjóðlegu vetnisverkefni og tilraunum til að eyða koltvísýringi úr andrúmsloftinu með því að dæla honum djúpt niður í iður jarðar þar sem vonir standa til að hann bindist í föstu formi. Segir í tilkynningunni að fyrirlesturinn hafi afar fjölsóttur og að honum loknum svaraði forsetinn mörgum spurningum frá vísindamönnum og stúdentum. Í ferð sinni til Ohio ræddi forsetinn einnig við nýkjörinn ríkisstjóra Ohio, Ted Strickland, um aukna samvinnu milli Ohio og Íslands á sviði vísinda, rannsókna og viðskipta. Hann ræddi einnig við John Glenn, fyrrverandi öldungardeildarþingmann og geimfara en hann var fyrsti Bandaríkjamaðurinn sem fór hringinn í kringum jörðina. Mikla athygli vakti og fyrir tíu árum þegar hann endurtók leikinn og varð þá jafnframt elsti maðurinn til fara út í geiminn.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Fleiri fréttir Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Sjá meira