Innlent

Byggja þjónustuhús fyrir fiskimenn á Srí Lanka

Frá uppbyggingu eins húsanna á Srí Lanka.
Frá uppbyggingu eins húsanna á Srí Lanka. MYND/Árni Helgason
Framkvæmdir eru hafnar á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands við ellefu byggingar á sex löndunarstöðum á vestur- og suðurströnd Srí Lanka. Fram kemur í tilkynningu frá stofnuninni að um sé að ræða fiskmarkaðshús, fjarskiptahús og salerni fyrir sjómenn og fiskverkendur sem nýta löndunarstaðina. Búist er við því að framkvæmdum ljúki í maí. Þessu til viðbótar er verið að skoða þrjátíu löndunarstaði á austurströnd Srí Lanka með það í huga að byggja þar þjónustuhús.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×