Unnur andlit íslenska hestsins 24. febrúar 2007 08:30 Unnur Birna er mikill hestaáhugamanneskja og er ekki óvön því að ríða út.
Einhver frægasta sýning Bandaríkjanna á ís, Ice Capades, hefur gert samstarfssamning við Icelandics on Ice um sýningar í öllum stærstu borgum Bandaríkjanna. Um er að ræða gríðarlega landkynningu fyrir Ísland og ekki síður íslenska hestinn en reiknað er með að rúmlega 800 þúsund komi til með að skoða sýninguna augum. Ráðgert er að senda út til Bandaríkjanna tíu knapa og hestastóð en frægasti knapinn verður sennilega Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, fyrrum alheimsfegurðardrottning. „Já, ég tek þátt í völdum sýningum, aðstoða við markaðssetningu og tek þátt í hestaatriði sem verður mjög flott. Verð svona andlit íslenska hestsins út á við og sýningarinnar,“ segir Unnur Birna. Um er að ræða hundrað sýningar en Unnur mun aðeins taka þátt í þeim stærstu, þar á meðal frumsýningunni sem verður í New York og stórri hestaveislu í Los Angeles. Annars sagðist Unnur Birna vera að einbeita sér að laganáminu í HR en vildi lítið tjá sig um kvikmyndatilboð frá Bollywood á Indlandi en sögusagnir um það hafa lengi verið á kreiki. „Þetta er á algjöru byrjunarstigi,“ segir Unnur. Björn Ólafsson, forsvarsmaður Icelandics On Ice, sagði þetta vera einhverja mestu landkyninngu sem Ísland hefði fengið í Bandaríkjunum um langt skeið. „Við reiknum með að koma í spjallþætti á borð við Good Morning America og svona mætti lengi telja,“ segir Björn en morgunþátturinn er einn sá vinsælasti í bandarísku sjónvarpi. Þá gætu spjallþáttastjórnendur á borð við Jay Leno og David Letterman sýnt þessu einhvern áhuga. „Þetta er kynning í mjög miklu návígi og mikið markaðssett,“ bætir Björn við sem var að vonum ánægður með liðstyrkinn í Unni Birnu.
Mest lesið Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Lífið Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Lífið Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Lífið samstarf María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu Tíska og hönnun Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Lífið Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Tónlist Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Lífið Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Lífið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Lífið Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Lífið Fleiri fréttir Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Sjá meira