Fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás 1. október 2007 13:34 MYND/GVA
Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 60 þúsund króna í sekt fyrir bæði líkamsárás og akstur án ökuréttinda. Manninum var gefið að sök að hafa slegið annan mann í andlitið í anddyri skemmtistaðarins Pakkhússins á Selfossi í fyrra og síðan sparkað í andlit mannsins þannig að hann bæði nef- og kjálkabrotnaði. Viðurkenndi hinn ákærði brotið eftir að hafa séð myndband af árásinni. Við ákvörðun refsingar horfði dómurinn meðal annars til þess að árásin var gróf og algjörlega tilefnislaus en leit einnig til þess að árásarmaðurinn væri fjölskyldumaður og stundaði fasta vinnu. Þá var maðurinn dæmdur til að greiða fórnarlambi sínu 470 þúsund krónur í skaðabætur vegna árásarinnar. Maðurinn hefur verið sviptur ökurétti ævilangt en neitaði fyrir dómi að hafa verið undir stýri þegar lögregla hafði afskipti af bíl hans í janúar á þessu ári. Sagði hann konuna sína hafa verið undir stýri. Tveir lögreglumenn báru hins vegar að þeir hefðu tekið eftir manninum við stýrið skammt frá Ölfusárbrú en bíl mannsins var eftir það ekið að bílastæði við Hótel Selfoss. Þar sögðu lögreglumennirnir að maðurinn hefði haft sætaskipti við konuna sína. Héraðsdómur lagði trúnað á frásögn lögreglumannanna og sektaði manninn um 60 þúsund krónur fyrir aksturinn.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Sjá meira