Innlent

Fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás

MYND/GVA

Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 60 þúsund króna í sekt fyrir bæði líkamsárás og akstur án ökuréttinda.

Manninum var gefið að sök að hafa slegið annan mann í andlitið í anddyri skemmtistaðarins Pakkhússins á Selfossi í fyrra og síðan sparkað í andlit mannsins þannig að hann bæði nef- og kjálkabrotnaði.

Viðurkenndi hinn ákærði brotið eftir að hafa séð myndband af árásinni. Við ákvörðun refsingar horfði dómurinn meðal annars til þess að árásin var gróf og algjörlega tilefnislaus en leit einnig til þess að árásarmaðurinn væri fjölskyldumaður og stundaði fasta vinnu. Þá var maðurinn dæmdur til að greiða fórnarlambi sínu 470 þúsund krónur í skaðabætur vegna árásarinnar.

Maðurinn hefur verið sviptur ökurétti ævilangt en neitaði fyrir dómi að hafa verið undir stýri þegar lögregla hafði afskipti af bíl hans í janúar á þessu ári. Sagði hann konuna sína hafa verið undir stýri.

Tveir lögreglumenn báru hins vegar að þeir hefðu tekið eftir manninum við stýrið skammt frá Ölfusárbrú en bíl mannsins var eftir það ekið að bílastæði við Hótel Selfoss. Þar sögðu lögreglumennirnir að maðurinn hefði haft sætaskipti við konuna sína. Héraðsdómur lagði trúnað á frásögn lögreglumannanna og sektaði manninn um 60 þúsund krónur fyrir aksturinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×