Letterman reif Paris í sig 1. október 2007 10:05 Tekin á teppið MYND/Getty
Spjallþáttastjórnandinn David Letterman fór allt annað en mjúkum höndum um hótelerfingjann Paris Hilton þegar hún mætti til hans í viðtal í góðri trú á föstudag. Paris var þangað komin til að kynna nýjustu kvikmynd sína, fatalínu og ilmvatn en Letterman bauð hana velkomna með því að spyrja hvernig henni hefði fundist í fangelsinu. Fát kom á Paris sem eins og alkunna er sat í fangelsi í 23 daga fyrr á árinu fyrir umferðarlagabrot. Letterman hélt áfram og spurði hvernig maturinn í fangelsinu hefði verið og hvort hún hefði misst einhver kíló. Paris sagðist hafa borðað egg og appelsinu í morgunmat, sleppt hádegismat og borðað kvöldmatinn inni á herbergi. „Maturinn var vondur enda er þetta fangelsi," sagði Paris. Letterman hélt áfram að spyrja út í fangelsisvistina og fljótlega rann upp fyrir Paris að hann var að gera stólpagrín að henni og sagðist hún sjá eftir að hafa komið í þáttinn og var heldur súr á svip. Letterman rak hana alveg á gat þegar hann spurði hvort hún hafi í raun vitað fyrir hvað hún sat inni. Þegar Paris svaraði ekki spurningunni hló Letterman tryllingslega en þegar Paris hafði jafnað sig sagði hún. „Ég hef haldið áfram með líf mitt og vil ekki tala um þetta." Áhorfendur úti í sal voru farnir að finna til með Paris og einn hrópaði „I love you, Paris!." Letterman var fljótur að grípa það á lofti og spurði: „Var þetta einhver sem þú kynntist í fangelsinu."Viðtalið í heild sinni má sjá hér.
Mest lesið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Lífið Fleiri fréttir Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Sjá meira