Ekki aðhafast frekar vegna skerðinga lífeyrissjóða 3. desember 2007 15:44 MYND/Vilhelm
Ríkisstjórnin mun ekki aðhafast frekar vegna skerðingar lífeyrissjóða á greiðslum til lífeyrisþega nú í desembermánuði að sögn Geirs H. Haarde forsætisráðherra.Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri - grænna, á Alþingi í dag. Steingrímur benti að 1600-1700 öryrkjar hefðu orðið fyrir barðinu á skerðingunni um síðustu mánaðamót og greiðslur hefðu í sumum tilvikum minnkað um tugi þúsunda. Sagði hann þetta kaldar kveðjur í jólamánuðinum og spurði hvort ríkisstjórnin ætlaði að láta þessa kjaraskerðingu standa óbreytta eða láta til sín taka. Benti hann á að bregðast þyrfti fljótt við.Geir H. Haarde sagði lífeyrissjóðina vera að bregðast við aðstæðum í eigin ranni á grundvelli samþykkta sinna. Benti hann á að félagsmálaráðherra hefði boðið lífeyrissjóðunum 100 milljóna króna fyrirgreiðslu til þess að falla frá skerðingunni en því hefðu lífeyrissjóðirnir hafnað. Ríkisstjórnin gæti ekki beitt sér fyrir frekara inngripi í starfsemi lífeyrissjóðanna.Hins vegar benti hann á að á milli annarrar og þriðju umræðu um fjárlagafrumvarpið yrði unnið að almennum breytingum í þágu aldraðra og öryrkja. Ákvarðanir þar um lægju ekki fyrir en það myndu þær gera á næstu dögum.
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Erlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Innlent „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Innlent Áttu góðan og langan fund í dag Innlent Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Innlent Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Innlent Fleiri fréttir Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Margt í miðborginni og annríki hjá lögreglu Hildur með pálmann í höndunum Lokatölur úr Flóahreppi: Meirihlutinn bætti við sig manni Sjá meira