Gagnrýna forseta og aðra þingflokka fyrir að rjúfa samstöðu 3. desember 2007 10:46 MYND/Egill Bjarnason
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs gangrýnir forseta Alþingis og formenn allra þingflokka fyrir að rjúfa hefð um samstöðu um breytingar á þingsköpum og leggja fram frumvarp án samkomulags við stærsta stjórnarandstöðuflokkinn. Hið nýja frumvarp verður á dagskrá þingfundar síðar í dag en samkvæmt því á að breyta ræðutíma á þinginu. Í stað þess að þingmenn fái eins langan tíma og þeir vilja í annarri umræðu um frumvörp verður tíminn takmarkaður við fimmtán mínútur en þingmenn mega í staðinn taka til máls eins oft og þeir vilja. Þingflokkur VG hefur boðað til blaðamannafundar vegna þessa en í yfirlýsingu harmar flokkurinn þessa málsmeðferð sem auðveldlega hefði verið hægt að vinna í sátt. Flokkurinn vilji gæta réttar og vígstöðu stjórnarandstöðunnar í samskiptum við meirihlutann og framkvæmdarvaldið. Segir VG það alrangt að flokkurinn hafi ekki viljað breytingar í þessum efnum. Forsenda þeirra breytinga verði hins vegar að vera sú að vinnubrögðin batni, vinnuaðstæður og allt skipulag verði betra og að staða stjórnarandstöðu og þingsins í heild gagnvart framkvæmdarvaldinu styrkist en veikist ekki. „Það er ekki til umræðu af hálfu VG að versla með réttindi og vígstöðu stjórnarandstöðunnar fyrir sporslur sem ekki hafa í sjálfu sér neina grundvallarþýðingu fyrir stöðu Alþingis gagnvart framkvæmdarvaldinu eða minnihluta á Alþingi. Það er hins vegar það sem er að gerast í þessu máli, meirihlutanum og framkvæmdavaldinu í hag," segir í tilkynningu frá þingflokki Vinstri - grænna.
Mest lesið Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Innlent Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Erlent Inga of upptekin til að funda: Foreldrahúsi verður lokað innan tveggja vikna Innlent Fleiri fréttir Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: Foreldrahúsi verður lokað innan tveggja vikna „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Sjá meira