Ólafur sagður sænskur 4. júlí 2007 08:30 Ólafur og Dagur hafa nú báðir lent í því að þjóðerni þeirra sé ruglað.
Íslendingar lenda stundum í því að nöfnum þeirra sé snúið á hvolf og farið er með rangt þjóðerni þeirra. Ólafur Jóhannesson er nýjasta fórnarlambið. „Ég er ekki Svíi og á engar ættir að rekja til Svíþjóðar,“ segir kvikmyndaleikstjórinn Ólafur en hann hefur nú bæst í hóp þeirra Íslendinga sem hefur verið sviptur föðurlandi sínu og var nýlega sagður sænskur á hinni vinsælu kvikmyndasíðu AC Media. Á síðunni var verið að greina frá næstu verkefnum leikaranna úr mafíu-þáttunum Sopranos en eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu leikur einn aðalleikari þáttanna, Micheal Imperioli, stórt hlutverk í nýjustu kvikmynd Ólafs, Stóra planið. Dagur Kári Danir hafa verið duglegir við að eigna sér íslenska listamenn. Að sögn Ólafs skilur hann ekkert hvernig þessi misskilningur getur hafa átt sér stað. En fréttin hafi farið víða og Ólafur er alls staðar sagður vera sænskur leikstjóri. Leikstjórinn er þó ekki eini Íslendingurinn sem hefur lent í þessum misskilningi en vinur hans, Dagur Kári, er oft sagður vera danskur og þar að auki hafa Danir verið duglegir við að eigna sér listamanninn Ólaf Elíasson þannig að eitthvað virðist Ólafs-nafnið flækjast fyrir blaðamönnum. Ekki má hins vegar gleyma knattspyrnukappanum Jon Dahl Tomason sem fjölmiðlar þreytast seint að minnast á að er íslenskur í aðra ættina. Leikstjórinn sagðist þó gera sér grein fyrir því að hið nýja þjóðerni gæti opnað honum nýjar dyr. Svíar væru jú framarlega í kvikmyndageiranum. „Svona kannski til lengri tíma litið er þetta kannski ekki svo slæmt,“ segir Ólafur. Tökum á Stóra planinu er nú lokið og situr Ólafur sveittur við að klippa myndina en með aðalhlutverkin fara þeir Pétur Jóhann Sigfússon og Eggert Þorleifsson.
Mest lesið Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Lífið Stjúpur og fjólur það heitasta Lífið „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Sjá meira