Þakklátir staðarhöldurum í Breiðavík 10. júlí 2007 00:15 Egill Helgi vildi koma á framfæri þakklæti til staðarhaldaranna í Breiðavík og hvatti alla til að halda minningu staðarins á lofti. Fréttablaðið/Anton „
Við erum þeim hjónum alveg ótrúlega þakklátir og móttökurnar hafa verið bæði hlýlegar og yndislegar,“ segir Egill Helgi Kristinsson, sem situr í stjórn Breiðavíkursamtakanna. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær eru Íslendingar tregir við að ferðast til Breiðavíkur eftir að upp komst um illa meðferð á unglingsdrengjum þar á 6., .7. og 8. áratugnum. Framar í blaðinu má síðan sjá umfjöllun um heimasíðu sem samtökin hafa stofnað á vefslóðinni breidavikursamtok.is. Málið vakti mikla athygli í fjölmiðlum á sínum tíma og sagði Keran Stueland Ólason, annar eigandi gistiheimilisins, í samtali við Fréttablaðið í gær að þau hjónin hefðu fundið áþreifanlega fyrir því að íslenskt ferðafólk væri feimið að koma til þeirra. „Þessi staður má alls ekki gleymast og minning hans verður að lifa. Við viljum taka það skýrt fram að við höfum alls ekkert á móti staðnum heldur eingöngu kerfinu sem brást okkur og sumu af því fólki sem þarna braut á okkur,“ bætir Egill við. Strákarnir frá Breiðavík hafa nú farið þangað saman einu sinni, um hvítasunnuhelgi, og buðu hjónin Keran og Birna Mjöll Atladóttir þeim að gista hjá sér að kostnaðarlausu. Að sögn Egils verður framhald á þessum ferðum. Einnig stendur til að endurgera fangaklefann sem þarna er sem og að endurreisa leiksvæðið en á sínum tíma fékkst aldrei leyfi til að gera það. „Ég hef grátið mikið í gegnum ævina en taldi mig alveg vera hættan því. En þegar ég kom þangað á gistiheimilið til þeirra og sá hversu vel mér gat liðið þarna þá klökknaði ég,“ segir Egill sem vildi hvetja Íslendinga til að gera sér leið vestur og þannig halda minningu staðarins á lofti.
Mest lesið Aron segist hættur í ClubDub Lífið Tíu af fyndnustu dýralífsmyndunum Lífið Aron Kristinn og Lára keyptu nýstárlega miðbæjarperlu Lífið Er með gervigreindarþjálfara Lífið „Hann var ekkert eðlilega góður í sleik“ Makamál Orsakir flösu og áhrifarík meðferð Lífið samstarf Hvar eru þau nú? Lífið Módernískur retró-stíll í hjarta miðborgarinnar Lífið Bergþór Másson selur slotið á ný Lífið Dregur til baka hluta ásakana á hendur Baldoni Lífið Fleiri fréttir Aron segist hættur í ClubDub Ragga nagli í hlutverk fjallkonu í Danmörku Dregur til baka hluta ásakana á hendur Baldoni Aron Kristinn og Lára keyptu nýstárlega miðbæjarperlu Módernískur retró-stíll í hjarta miðborgarinnar Tíu af fyndnustu dýralífsmyndunum Er með gervigreindarþjálfara Væbaramanía og múgæsingur er nýtt átak var kynnt Bergþór Másson selur slotið á ný Kaffibarinn til sölu í smækkaðri mynd Troðfylltu Laugardalshöll á umtöluðum tónleikum FM95Blö Söknuðurinn bar Skoppu og Skrítlu ofurliði Stjörnulífið: Sumarlegar skvísur og stórtónleikar Hvar eru þau nú? Myndaveisla: Á bólakafi að skoða fiska á Sjómannadaginn Birta Líf og Gunnar Patrik gáfu dótturinni nafn Sirkushundur skemmtir ferðamönnum á Höfn í sumar Race Across the World-keppandi látinn eftir bílveltu Valerie Mahaffey er látin Krakkatían: Lilo & Stitch, Skólahreysti og útskriftir Einar á Söndru Bullock mikið að þakka Á loks réttinn að öllum plötunum sínum Gamlir Fóstbræður sungu fyrir Njál og hans fólk á Bergþórshvoli „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn Kökuskreytingar og þjóðdansar á „Fjör í Flóa“ í dag Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Matti Matt nú meistari Mikið um dýrðir á þjóðardegi Íslands í Japan Sætustu systur landsins skáluðu fyrir Birni Sjá meira