Innlent

Landsþing Frjálslynda flokksins sett

Landsþing Frjálslynda flokksins hófst nú síðdegis. Mikil spenna ríkir vegna varaformannsslags Magnúsar Þórs Hafsteinssonar og Margrétar Sverrisdóttur en kosið verður á milli þeirra síðdegis á morgun.

Barátta þeirra Magnúsar Þórs og Margrétar hefur verið afar hatrömm og velta menn því fyrir sér hvort flokkurinn kunni að klofna í kjölfar úrslitanna á morgun. Enginn gerir hins vegar atlögu að Guðjóni Arnari Kristjánssyni í formannstól sem setti Landsþingið á Hótel Loftleiðum síðdegis. Þar sagði hann að Frjálslyndi flokkurinn væri kominn til með að vera til frambúðar í íslenskum stjórnmálum og hann ætlaði sér, ásamt hinum stjórnarandstöðuflokkunum, að fella ríkisstjórnina og mynda nýja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×