Landsbankinn vex hraðar erlendis en innalands 26. janúar 2007 14:15
Hagnaður Landsbankans nam 40,2 milljörðum króna á síðasta ári. Þar af nam hagnaðurinn á fjórða og síðasta fjórðungi liðins árs 14,1 milljarði króna. Þetta er talsvert yfir væntingum greiningaraðila sem gerðu ráð fyrir 6,8 til 7,4 milljarða króna á tímabilinu. Til samanburðar nam hagnaður Landsbankans 25 milljörðum króna árið 2005 og 8,8 milljörðum króna á síðasta fjórðungi ársins. Þetta jafngildir því að hagnaður bankans eftir skatta hafi aukist um 61 prósent á milli ára. Grunntekjur Landsbankasamstæðunnar (vaxtatekjur og þjónustutekjur) námu tæpum 70 milljörðum króna og er það 30 milljarða króna aukning á milli ára. Tekjur af erlendri starfsemi námu 46,6 milljörðum króna eða 52 prósentum af heildartekjum Landsbankans samanborið við 10,4 milljarða krónur og 17 prósenta hlutfallið ári fyrr. Þá var arðsemi eigin fjár eftir skatta 36,3 prósent á síðasta ári og · Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 36,3%.Hraðari vöxtur erlendis en á ÍslandiLandsbankastjórar kynna uppgjörið í London í morgun. F.v. Brynjólfur Helgason, framkvæmdastjóri alþjóðasviðs, Halldór J Kristjánsson, Lord Baker, stjórnarformaður Landsbankans í Bretlandi, Sigurjón Þ. Árnason og Björgólfur Guðmundsson stjórnarformaður Landsbanka Íslands hf.MYND/LandsbankinnHaft er eftir þeim Sigurjóni Þ. Árnasyni og Halldóri J. Kristjánssyni, bankastjórum Landsbankans, að afkoman sé einstaklega góð og eigi velgengni bankans í Bretlandi á árinu stóran hlut að máli. Halldór segir vekja athygli í Bretlandi hversu innlánsreikningar bankans þar hafi vaxið mikið. Innlán viðskiptavina bankans í Bretlandi jukust um 104% á síðasta ári. Hann segir að vöxtur bankans sé mjög hraður utan Íslands. Hann segir verða framhald á þeirri þróun og að vöxturinn verði hraðari utan Íslands vegna þess öfluga nets sem bankinn hefur komið sér upp í 14 ríkjum.Bankastjórarnir segja, að erlendir greiningaraðilar hafi haft áhyggjur af skammtímaaðlögun íslenska hagkerfisins og áhrifa hennar á fjármögnun og rekstur bankanna eftir mikla umræðu um íslenskt efnahagslíf í fyrra. Að hluta hafi sú umræða verið byggð á misskilningi sem hafi verið leiðréttur með öflugri upplýsingagjöf.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Sjá meira