Innlent

Rúnar í stað Haraldar í skattrannsókn tengdri Baugi

MYND/365
Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur í dag sett Rúnar Guðjónsson, sýslumann í Reykjavík, til þess að vera ríkislögreglustjóri við rannsókn á meintum skattalagabrotum fimm manna tengdum Baugi. Hæstiréttur komst að því á þriðjudag að Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri skyldi víkja sæti við rannsókn málsins þar sem hann hefði með tilteknum ummælum sínum í fjölmiðlum gert sig vanhæfan til að stjórna rannsókninni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×