Innlent

Skipafélög nær alveg samstíga í verðhækkunum

Stjórnendur Samskipa og Eimskips eru nær alveg samstíga í verðhækkunum, tímasetningu þeirra, og í álagningu aukagjalds, samkvæmt athugun Neytendasamtakanna.

Bæði félögin hafa ákveðið að hækka farmgjöld um næstu mánaðamót. Hækkunin er líka ámóta þar sem Eimskip hækkar um fjögur og hálft prósent og samskip um fimm. Félögin eru líka samstíga í að taka nú upp sérstakt olíugjald, sem þau segja tengd olíuverði á heimsmarkaði. Uphæð gjaldsins er líka áþekk, 2,75 prósent hjá Samskip og 2,68 prósent hjá Eimskip.

Athygli vekur að félögin skuli leggja olíugjald á flutningana einmitt núna þegar olía á heimsmarkaði er ódýrari en hún hefur verið um langt skeið. Samkvæmt skyndikönnun fréttastofunnar eru farmgjöldin líka áþekk fyrir hina minni flutninga en samið er sérstaklega um stórviðskipti.

Ekki liggur fyrir hvort Samkeppniseftirlitið ætlar að skoað málið en það skoðaði sérstaklega svonefnd staðsetningargjöld sem félögin voru býsna samstíga í að leggja á í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×