Innlent

Bændur í Eyjafjarðarsveit vilja fá bætur vegna flóða

Horft út Eyjafjörð.
Horft út Eyjafjörð.

Um tuttugu og fimm aðilar vilja fá bætur vegna tjóns sem hlaust af flóðum í Eyjafjarðarsveit fyrir jólin. Óvíst er hversu mikið fæst bætt.

Norðlenski fréttavefurinn Vikudagur hefur eftir Bjarna Kristjánssyni, sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit, að Bjargráðasjóður taki öll málin til skoðunar en sennilega fái ekki allir sem óska eftir bætur. Tjón á ræktuðu landi, girðingum og skemmdir á áhöldum er meðal þess sem sjóðurinn bætir. Annað mál gildir hins vegar um óræktað land og skemmdir á heimreiðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×