Innlent

Páfagaukur flúði frostið inn á veitingahús

Viðskiptavinur á veitingahúsinu Tívolí í miðbæ Reykjavíkur varð fyrir nokkuð óvenjulegri reynslu í dag. Þegar hann var að ganga inn um dyr veitingastaðarins settist páfagaukur á öxl hans. Fuglinn er hinn sprækasti þrátt fyrir að hafa verið flögrandi um í frostinu. Hann hefst nú við í góðu yfirlæti og gæðir sér á smáréttum í boði kokksins. Fuglinn er grænn og appelsínugulur að lit en ef einhver kannast við páfagaukinn á myndinni er sá hinum sama bent á að hringja í síma 552-0077.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×