Innlent

Grunaður um fjölda innbrota og þjófnaði

Maðurinn var úrskurðaður til að sæta gæsluvarðahaldi en þó ekki lengur en til 23. febrúar.
Maðurinn var úrskurðaður til að sæta gæsluvarðahaldi en þó ekki lengur en til 23. febrúar. MYND/Stefán

Hæstiréttur Íslands staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni sem grunaður er um innbrot og þjófnaði. Maðurinn var handtekinn í síðustu viku eftir að hafa brotist inn á hárgreiðslustofu í Hlíðarsmára og stolið sjóðsvél. Maðurinn hefur játað brot sín.

Maðurinn er grunaður um fleiri brot en tveimur dögum áður var hann stöðvaður á bíl sem hann hafði stolið og var þýfi í bílnum auk þess sem maðurinn ók án þess að hafa ökuréttindi. Maðurinn er grunaður um fjölda annarra innbrota en hann hefur áður hlotið dóm fyrir rán. Maðurinn var úrskurðaður til að sæta gæsluvarðahaldi en þó ekki lengur en til 23. febrúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×