Kennarar hafa þungar áhyggjur af kjaramálum 28. nóvember 2007 21:48
Á fundi kennara í Digranesskóla í kvöld var samþykkt ályktun þar sem þungum áhyggjum yfir kjaramálum grunnskólakennara er lýst. Fundurinn segir að skólastarfi sé stefnt í verulega hættu með fáránlega lágum launum. Ályktunin í heild sinni: Fundur kennara við Digranesskóla lýsir yfir þungum áhyggjum af kjaramálum grunnskólakennara. Skólastarfi er stefnt í verulega hættu með fáránlega lágum launum sem valdið hafa flótta úr stéttinni. Í nýlegu fréttabréfi frá Kjararannsóknarnefnd (KOS) kemur fram að kaupmáttur launa grunnskólakennara og skólastjóra í Reykjavík hefur rýrnað um 5,6% frá árinu 2005 á meðan kaupmáttur almennt, mældur með launavísitölu Hagstofunnar, hefur vaxið um rúm 8% fram á mitt ár 2007. Grunnskólakennarar hafa því dregist verulega aftur úr viðmiðunarstéttum. Kennarar við Digranesskóla skora á Bæjarstjórn Kópavogs að nýta sér þann möguleika að semja sérstaklega við grunnskólakennara Kópavogsbæjar. Vísum við í yfirlýsingu Samninganefndar Félags grunnskólakennara: Félag grunnskólakennara er tilbúið að ræða við LN eða einstök sveitarfélög um gerð kjarasamninga og/eða vinnustaðasamninga. Kennarar í Digranesskóla hafa fengið nóg af því að þurfa stanslaust að standa í kjarabaráttu og reyna að draga viðmiðunarhópa sína uppi í launum í lok hvers samningstímabils. Það er ekki bjóðandi að í landinu er verið að borga kennurum laun sem eru með þeim allra lægstu í OECD löndunum eins og komið hefur í ljós. Það getur ekki verið í þágu menntunar. Kennarar í Digranesskóla, Kópavogi.
Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira