Starfstími Alþingis lengdur en þingfundadögum ekki fjölgað 28. nóvember 2007 21:11
Starfstími Alþingis verður lengdur þannig að það hefur störf í byrjun september en hins vegar verðir þingfundadögum ekki fjölgað. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýju frumvarpi að breytingu á þingsköpum Alþingis sem ætlað er að færa vinnubrögð þingsins nær tíðaranda og tæknibreytingum síðustu ára. Fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að það sé afrakstur starfs sem fram hafi farið á vegum forseta þingsins, forsætisnefndar og formanna þingflokka. Að frumvarpinu standa Sturla Böðvarsson, forseti þingsins, og allir þingflokksformenn á Alþingi nema þingflokksformaður Vinstri grænna. Samkvæmt frumvarpinu er áfram gert ráð fyrir að þingfundadagar verði um 100 á vetri en hins vegar hefur Alþingi störf í byrjun september. Hins vegar verður samkomudagur nýs þings áfram 1. október og er því hugmyndin að störfin í september verða því framhald þess þings sem sat veturinn áður. Frumvarpið gerir ráð fyrir að óundirbúnum fyrirspurnartímum verði fjölgað og þá er ætlunin að fækka kvöld- og næturfundum þannig að þeir heyri til undantekninga. Þá á að efla tengsl nefnda og ráðherra með því að ráðherrar kynni að hausti nefndum sem eru á málefnasviði þeirra þau mál sem þeir hyggjast leggja fram á því þingi sem þá er að hefjast. Þá á að bæta starfsaðstöðu þingmanna eins og fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gær. Bent er á að þeim breytingum fylgi allnokkur fjárútlát og verður breytingartillaga lögð fram við 2. umræðu um fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2008 til að mæta þeim. Meðal annars er gert ráð fyrir að ráðnir verði aðstoðarmenn fyrir formenn stjórnarandstöðuflokka sem jafnframt eru alþingismenn. Þeir yrðu nú þrír. Enn fremur eiga þingmenn í landsbyggðarkjördæmunum þremur, Suður-, Norðaustur- og Norðvesturkjördæmi að fá aðstoðarmenn en rætt hefur verið um það allt frá því að kjördæmaskipan var breytt fyrir átta árum. Miðað við núverandi stöðu er þurfa 22 þingmenn aðstoð og er miðað við að tveir þingmenn deili aðstoðarmanni þannig að þeir verði 11. Það verður hins vegar lagt í hendur fjárlaganefndar og síðar Alþingis að ákveða hversu miklir fjármunir renna til þessa verkefnis. Þessar breytingar á þingsköpum á að gera fyrir jólahlé þannig að þær komi til framkvæmda strax á vorþingi.
Mest lesið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent Átta börn látin eftir skotárás Erlent Inga sendir boltann á sveitarfélögin Innlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Ég sé engin rök fyrir því“ Innlent Fleiri fréttir Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Sjá meira