Varðskipsmenn um borð í Axel 28. nóvember 2007 10:06
Dæling gengur nú vel úr Flutningaskipinu Axel sem lónar úti á Vopnafirði eftir að leki kom að skipinu um klukkan sjö í morgun. Björgunarsveitarmenn fóru út í skipið með dælurnar en þá var um metra djúpur sjór í framlestinni og skipsdælurnar réðu ekki við dælinguna vegna krapa. Skipstjórin á Axel hafði líka beðið um aðstoð og dælur þegar skipið var statt út af Norðfirði um miðnætti en afturkallaði beiðnina þegar björgunarmenn voru komnir á vettvang. Varðskip er væntanlegt að skipinu í hádeginu og verða þá dælur úr því hífðar um borð og hefur skipstjórinn fallist á að mannskapur af varðskipinu verði um borð þar til skipið kemst í höfn. Varðskipið mun líka fylgja því. Hefur skipið tekið stefnuna á Akureyri. Göt á skrokk Axels Fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni og Landsbjörgu að við skoðun á Fáskrúðsfirði í gærkvöld hafi komið í ljós göt á skrokk flutningskipsins sem þó voru aðeins inni í lokuð rými í skipinu. Ekki var því talin hætta á að leki kæmist að lestum. Því var í samráði við sérfræðinga ákveðið að skipið skyldi halda til Akureyrar þar sem áætlað er að það fari í slipp. Hins vegar varð vart við leka þegar skipið var statt úti fyrir Norðfjarðarflóa um klukkan ellefu í gærkvöld. Björgunarskipið Hafbjörg var sent á staðinn með dælur og mengunargirðingar voru gerðar tiltækar. Einnig voru gerðar ráðstafanir til að taka mætti skipið til hafnar á Neskaupstað. Um miðnættið kom í ljós að dælur skipsins höfðu vel undan að dæla sjó úr lestunum sem reyndist ekki vera olíumengaður.
Mest lesið Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Innlent Fleiri fréttir Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Sjá meira