Sektaður fyrir að valda hættu og hneykslan 23. apríl 2007 14:26
17 ára drengur frá Mosfellsbæ var í dag dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands til að greiða 30 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs fyrir brot á áfengis- og umferðarlögum. Hann var ákærður fyrir að valda „hættu og hneykslan á almannafæri”, eins og segir í ákæru, með því að sitja uppi í afturrúðu bifreiðar sem ók eftir Austurvegi á Selfossi í desember 2006. Að auki var hann ákærður fyrir að neita að gefa lögreglu upp nafn sitt og kennitölu. Málsatvik voru á þá leið að lögregla hafði umrædda nótt stöðvað bifreiðina eftir að tilkynnt hafði verið um óvarlegt aksturslag. Ökumaður hafði lofað að bæta ráð sitt en skömmu síðar sá lögreglan hvar bílnum var ekið eftir Austurvegi og sat ákærði þá uppi í afturrúðu bílsins. Í framburði lögreglumanns fyrir dómi kom fram að drengurinn hefði verið með búkinn úti og fæturna inni í bílnum og að hann hefði veifað og hrópað í átt að lögreglubílnum. Þegar lögregla hafði fært drenginn inn í lögreglubíl neitaði hann að segja til nafns og gerði tilraun til að yfirgefa lögreglubílinn. Við leit á honum kom í ljós að hann var undir lögaldri og var honum tilkynnt að hann væri handtekinn og að haft yrði samband við foreldra hans. Þrátt fyrir að ökumaður og farþegar bifreiðarinnar hafi neitað því að drengurinn hafi setið uppi í glugga bifreiðarinna þótti dómara fullsannað að svo hafi verið. Ákærði neitaði því einnig að hafa ekki viljað segja til nafns en dómara þótti það fullsannað. Drengurinn var því dæmdur til að greiða 30 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins en sæti ella fangelsi í fjóra daga. Hann var einnig dæmdur til að greiða málsvarnarlaun til verjanda síns, tæpar 200 þúsund krónur.
Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira