Alltaf hægt að klifra eitthvað 7. mars 2007 10:00 Ágúst bíður spenntur eftir komu Steve House hingað til lands. MYND/GVA
Íslenska alpafélagið verður þrjátíu ára næstkomandi sunnudag. Í tilefni af afmælinu stendur félagið fyrir ýmsum viðburðum á þessu ári. Á föstudag kemur hingað til lands einn áhrifamesti fjallgöngumaður af sinni kynslóð, Steve House, og mun hann dvelja hér í tæpa viku. „Þetta er mjög stórt nafn og merkilegur karl. Það eru nokkrir aðilar sem ætla að sjá um hann og sjá til þess að hann fái að kynnast landi og þjóð,“ segir Ágúst Kr. Steinarsson, stjórnarmeðlimur Íslenska alpafélagsins. Á mánudag heldur House fyrirlestur og myndasýningu um ævintýri sín auk þess sem hann ætlar að fara í fjallgöngur, ísklifur og margt fleira. House hlaut Gullnu ísöxina (Piolet d’Or) árið 2005 ásamt klifurfélaga sínum, Vince Anderson. Verðlaunin hlutu þeir fyrir að klifra hið hrikalega Rupal fés á Nanga Parbat (8.125 m) í Pakistan án allrar utanaðkomandi aðstoðar. Áherslur House af fjallamennsku einkennast af virðingu fyrir náttúrunni auk þess sem hann leggur áherslu á að ferðast hratt með lítinn farangur og skilja engan búnað eftir á fjallinu. Að sögn Ágústs eru fimm til sex hundruð manns skráðir í alpafélagið, þar sem áhersla er lögð á jaðarsport á borð við ísklifur, fjallgöngur og skíðamennsku. „Við bjóðum upp á námskeið fyrir okkar félagsmenn í öllum greinum sem falla undir okkar áherslur. Við höldum líka árlegar myndasýningar þar sem við sýnum stuttmyndir af köppum sem eru í þessu sporti,“ segir hann. Ágúst vill ekki meina að klifur sé erfitt sport. „Rétt eins og fólk getur labbað upp tröppur getur fólk alltaf fundið eitthvað til að klifra. Þetta er fyrir alla og fólk finnur bara það sem hentar því.“ Afmælisfjallganga verður haldin á á sunnudag þegar farið verður á Skessuhorn. „Fyrsta ferðin sem var farin í þessu félagi árið 1977 var á þetta fjall. Við ætlum að fjölmenna á afmælisdaginn og það er opið öllum. Við ætlum að reyna að fá merka menn til að vera með leiðsögn og við ætlum að fara mismunandi leiðir og hafa góða fjölbreytni. Þetta verður vonandi mjög skemmtileg ferð.“ Helgina 16. til 18. mars verður síðan haldin Telemark-hátíð á Akureyri þar sem keppti verður í hinum ýmsu greinum. Nánari upplýsingar um Íslenska alpafélagið má finna á isalp.is.
Mest lesið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Lífið Fleiri fréttir „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Sjá meira