Íslensk Anna Nicole braut fánalög 7. mars 2007 09:45 Anna Nicole klæddist þessu bikiníi sem vakið hefur mikla athygli og gæti verið lögbrot. Fréttablaðið/Páll
Miss Hawaiian-Tropic keppnin var haldin á Nasa á laugardaginn en þar kepptu tíu stúlkur um hylli dómnefndar. Bikiní eins keppandans vakti athygli enda skrýddist hún íslenska fánanum. „Forsætisráðuneytið hefur ekki gefið leyfi fyrir notkun fánans með þessum hætti og gerir það ekki nema með alveg sérstökum undantekningum,“ segir Þórhallur Vilhjálmsson í forsætisráðuneytinu um það atvik að einn keppenda í Miss Hawaiian Tropic síðasta laugardag, Anna Nicole Grayson, kom fram í forláta-bikiníi sem hannað var í íslenska fánanum. Engar kvartanir hafa borist til forsætisráðuneytisins en Þórhallur telur nokkuð víst að þarna hafi fánalögin verið brotin. „Þetta ætti að vera eitthvað sem fólk gæti kært til lögreglu enda varða brot á fánalögum við refsingu eða fjársektum og kemur til kasta lögreglu,“ útskýrir Þórhallur. Ásdís Rán Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Hawaiian-Tropic, kom af fjöllum þegar Fréttablaðið bar undir hana þetta hugsanlega lagabrot. „Stúlkurnar fengu það hlutverk að hanna bikiní með íslensku þema og ég hafði ekki séð þau áður en keppendurnir klæddust þeim,“ útskýrir Ásdís sem þótti það auðvitað miður ef þarna hefðu einhver lög verið brotin. „Hugmyndin kom bara af sjálfu sér og ég vissi reyndar ekki að þetta gæti brotið í bága við lög,“ segir Anna Nicole Grayson sem hannaði bikiníið og klæddist því í keppninni. Hún segir að engin þeirra sem saumuðu bikiníið hafi gert athugasemdir við notkunina á fánanum. Íslensk fánalög eru ákaflega ströng og skýr og eru fordæmi fyrir því að hópar og einstaklingar hafi verið dæmdir fyrir að virða reglur um notkun á honum að vettugi. Í 12. grein fánalaga stendur meðal annars að: „Enginn má óvirða þjóðfánann, hvorki í orði né verki. Óheimilt er að nota þjóðfánann sem einkamerki einstaklinga, félaga eða stofnana eða auðkennismerki á aðgöngumiðum, samskotamerkjum eða öðru þess háttar.“
Mest lesið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Lífið Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Lífið Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Lífið Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Lífið Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Bíó og sjónvarp Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Lífið Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð Lífið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið Fleiri fréttir Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Sjá meira